Auglýsing

Könnun

Hlakkar þig til að byrja í skúlen ?

Kreppa á Íslandi.

01. október 2008 klukkan 20:37

Jáhá erum við að tala um kreppu á Íslandi. Glitnir verður gjaldþrota og allir eru að verða atvinnulausir. Er það svona sem Ísland verður í framtíðinni ? Er þá ekki bara málið að fara einhversstaðar þar sem er nóg af vinnu, sól, kokteilum og ódýrara lífi. Eða það er allavega það sem ég vil gera.
En í stað þess á maður íbúð, bíl, og er að leigja á þessum rándýra markaði sem að Ísland býður uppáþ
Afborgun af íbúðarláni mínu frá því í febrúar er búið að hækka töluvert. Frá 130 þúsund og uppí 160 þúsund aðeins á nokkrm mánuðum. Og bíllinn minn, á ég að tala um það. Við keyptum hann ekki fyrir svo löngu síðan, og var afborgunin 14 þúsund og er nú kominn uppi 23 þúsund á mánuði. Og lánið sjálft búið að hækka uppúr öllu valdi. Um að gera bara að taka strætó, en samt ekki eins og það hækki ekki líka.

En já fyrir þá sem að lesa bloggið mitt, og þar að leiðandi hafa ekki séð neitt nýtt á því frá því í maí, þá er ég flutt niðrí 101 Reykjavík, og er það með því það furðulegasta sem ég hef upplifað. Aldrei hefur mér eins mikið fundist ég vera í útlöndum, þótt að maður sé staddur í miðbæ í sínu eigin landi :) En það er bara skondið. Maður sér mun meira af furðulegu fólki, og slagsmálum og löggumálum heldur en áður.
En mér finnst ég aldrei í lífi mínu ég hafa verið jafn aware of hvað er að gerast á Íslandi og eftir að ég flutti í miðbæinn.

En já nóg af bulli í bili.. skrifa seinna :) set kannski nokkra brandara inná bráðum :P


                                                              -Gonzales

Brandari dagsins :)

30. september 2008 klukkan 20:30

Why is Santa's sack so big ???


4

Because he only comes once a year :D:D

Brandari :)

30. september 2008 klukkan 03:29
Hvað þarf marga gothara til að skipta um ljósaperu ????????




3










Engann, þeir sitja bara og gráta í myrkrinu :D:D:D:D

21 dagur !!! :)

03. maí 2008 klukkan 19:44
Jáhá, maður er nú aldeilis búinn að vera latur við það að blogga. Hef alltaf verið að hugsa..:jæja nú þarf ég að fara að drífa í að blogga, en oftast hefur letin nú yfirhöndina..
    Enn vá, eruði að átta ykkur á því að það er kominn MAÍ! :O Mér finnst svo rosalega stutt frá því að það voru jól og áramót. Enn, ekki er ég að kvarta, sólin er að koma og ég á bráðum afmæli :P
    Já ég á tvítugsafmæli núna 24.maí.. og mun ég mjög líklega halda uppá það á ákveðnum skemmtistað :) Ég er svo heppin að eiga 20ára afmæli á þessu ári, því að afmælið mitt er á laugardegi, og þetta er eurovision kvöldið sjálfa :) Og svo var ég að heyra að Pendulum spilar einnig á Broadway þetta kvöld :) Þannig að næs fyrir mig .. Hef allavega nóga ástæðu til að DETTA í það þennan dag :)
    Úff ég veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja í að segja frá því hvað er að frétta..:) Það er kannski ekkert mikið búið að gerast hjá mér, en ég er búin að vera alveg á hundrað í að vinna, enda fékk ég líka útborgað samkvæmt því:P Svo er líka allt að breytast í vinnunni hjá mér.. úff, bara vika í að við opnum nýju laugina :) Í næstu viku verður lokað hjá okkur í sundlauginni og við verðum að vinna frá 8-4... örugglega við að þrífa og gera allt tilbúið fyrir opnunina :) Rooosa spennó ;)
Svo erum við skötuhjúin alltaf eitthvað að basla :)
     Á miðvikudeginum fyrir sumardaginn fyrsta fórum við aðeins á tjúttið :) Ég var að drekka með Steina, Óla Rúnari og Einari Gellu, og svo hittum við Lísu beibí í bænum, en hún var að dimmitera þetta kvöld :)
     Svo núna seinasta miðvikudag þá fór ég með Ingunni að kíkja á krakkana í MK dimmitera :) Og það var gaman að sjá alla svona skemmtilega í kærleiksbjarnarbúningum. Ætla að setja myndir inná myspaceið mitt.. myspace.com/pappirspesi ;)
Svo er bara spurningin hvað maður gerir í sumar :P

Skrifa vonandi meira fljótlega ;)


:)

20. mars 2008 klukkan 20:22
Jæja maður verður víst að blogga, víst að Dísa sæta er búin að auglýsa bloggverkfall uns ég blogga :)

En já vá, það er margt búið að gerast síðan við fengum íbúðina afhenta. :) Erum bara búin að koma okkur frekar vel fyrir en eigum samt eftir að gera ýmislegt, og kaupa ýmislegt meira..eins og UPPÞVOTTAVÉL! :O það er alveg ómögulegt að lifa án hennar þegar maður er buin að venja sig á hana :)
Við erum bara frekar ánægð með íbúðina okkar :) Eins og ég var búin að segja áður, þá erum við 10 mínutur að keyra í byko á hverjum morgni, en það er minna heldur en af Mánabrautinni. Það er bara svo þæginlegt að þurfa að keyra þessa einu blessuðu braut og þá er maður kominn í vinnuna..(eða steini allavega hehe)
Við erum ekki búin að fá mikið af gestum, þannig að þeir sem eru ekki búnir að koma (þið ættuð að skammast ykkar :O) endilega kíkjið í heimsókn um páskana :) En við fengum alveg yndislegan skáp í innflutningsgjöf frá tengdó, og ég get ekki lýst því hvað ég er ánægð með hann. Nota hann of course undir öll glösin mín :) Og svo erum við búin að kaupa okkur ýmsilegt, eins og nýjann sófa, og eldhúsborð/borðstofuborð :)

En já í síðustu viku var ég að skipta um vinnu, ég var semsagt að vinna fulla vinnu á Leikskólanum en ég hætti seinasta föstudag. Og á miðvikudaginn seinasta þá byrjaði ég að vinna fulla vinnu í Sundlaug Kópavogs, og er það bara fínt. En ég er semsagt búin að vera algjör vinnualki síðan þar seinasta mánudag, vann 14 tíma vinnudag á miðvikudag,fimmtudag og föstudag, auk þess að vinna alla helgina og þangað til núna. Og ég get ekki sagt hversu glöð ég er að fá að sofa út á morgun :) Er búin að vera að vakna kl 5.20 núna á hverjum morgni í þessari viku, til að mæta í vinnuna :P

En já ég held ég láti þetta bara duga í bili :) Vil samt segja að ég er að setja myndir sem ég tók áðan af íbúðinni inná myspace síðuna mína og á myndasíðuna .. pappirspesi.myphotoalbum.com :) Endilega kíkjið :)


Kærlig hilsen
Pappírspési :)
3

Búin að fá afhent :P

06. mars 2008 klukkan 17:04
Jæja við fengum afhent á mánudaginn seinasta og var það ekkert nema gleði gleði.:) Erum búin að eyða slatta mikið af pening núna undanfarið. Kaupa málningu (dýrara en ég bjóst við) og nýjar höldur á eldhúsinnréttinguna, og nýja fronta á slökkvara og rafmagnstengla.
 En þetta verður flott þegar við erum búin að öllu. Á þriðjudaginn var málað, og í gær líka og verður lögð lokahönd á íbúðina í kvöld.. Tók aðeins lengri tíma en ég hélt að þetta myndi gera. En sem betur fer klárum við í kvöld(vonandi:P) Þá fer morgundagurinn bara í að fara með kassa, og byrja að raða hlutunum sem komast í bílana (yarisinn og mömmu bíl ) En það er víst eitthvað takmarkað af hlutum hehe :P
Ég er búin að taka myndir af íbúðinni eins og hún var áður en við máluðum. Þ.e.a.s gul og bleik! :) En svo verða teknar myndir í kvöld, eftir að við klárum, og svo nátturulega þegar við erum flutt inn :)Svo við getum sýnt öllum sem hafa ekki tækifæri á að koma að skoða strax..
Núna þarf ég víst að fara að troða einhverjum kössum í bílinn, þannig að ég læt þetta gott í bili. ;)
Adios

Nú líður að þessu!

03. mars 2008 klukkan 00:34
Mesta lagi 3 dagar :P Vá hva mig hlakkar til...

14 dagar :)

21. febrúar 2008 klukkan 11:34
Úff langt síðan ég bloggaði :)
Það er svosem enn ekkert mikið að frétta af okkur. Við erum flutt út af mánabrautinni og búum heima hjá tengdó í bili. Við erum búin að skrifa undir kaupsamninginn okkar og erum að bíða eftir að fá afhent sem verður 6.mars :) Við erum orðin svoo spennt að við getum varla talað um neitt annað.
Núna erum við svo gott sem búin að kaupa okkur fallegan leðursófa sem yrði rosalega flottur inní nýju íbúðinni okkar :) Hef síðan heyrt að við fáum kannski flottan glerskáp í gjöf. Svo ætlum við að kaupa okkur uppþvottavél og borðstofuborð :) Verður svo gaman að vera komin í sitt eigið :)
    Annars hef ég ákveðið að hætta í skólanum og fara að vinna fulla vinnu, sérstaklega vegna þess að fyrstu mánuðirnir verða örugglega erfiðastir að borga af láninu. Ég mun svo taka fjarnám með vinnu í haust, eins ætlar Steini örugglega að fara í fjarnám í Viðskiptafræði frá Háskólanum. Held það allavega :)
Er ekki búin að finna mér vinnu, en ef þið hafið einhverjar hugmyndir endilega látið mig vita. Er á fullu núna að gera ferilskrá og sækja um vinnur :)
    Annars held ég að það sé ekkert meira að frétta af okkur skötuhjúunum :) Læt þetta bara gott í bili..

Bloggídí blogg :)

07. febrúar 2008 klukkan 17:54
Jahá :) Það er nú ekkert nýtt að frétta svosem af okkur skötuhjúnum :) Nema bara að við erum búin að vera að standa á haus í að pakka allri búslóðinni okkar...Sofum í stofunni núna og erum byrjuð að þrífa svefnherbergið. Mjög fínt að sofa bara í stofunni eða mér finnst það :)
    Við flytjum á laugardaginn og er mikil eftirvænting í gangi :) Allt dótið okkar mun fara heim til mömmu og pabba, nema rumið okkar, það fer heim til tengdó með okkur auðvitað :)
    Seinasta helgi var fín :) Vinnuhelgin min.. Á Föstudeginum voru dísa og sigurgeir í mat hjá okkur. Við fórum svo niðrí bæ (sem ég ætlaði svo ekki að gera hehe) og skemmtum okkur konunglega, eða allavega ég :) Hittum eitthvað af fólki og fórum svo bara snemma heim, eða um 3 leytið.
    Fór svo í vinnuna kl 8 á laugardeginum, og eftir vinnu þá fórum við á þorrablót heima hjá ömmu og afa :) Svo bauð María okkur að koma að passa og við fórum að passa sæta frænda minn(sem ég er svo mjög ástfangin af) sem er aðeins 2 mánaða :) Mesta dúlla í heimi :) Hann á einmitt að vera skírður á mánudaginn og ég get ekki beðið...:P
    Ég fór í litun og klippingu hjá Lísu sætu á mánudaginn uppí Iðnó :) Og er svo voða sátt við útkomuna :) takk skvísa ;)
Og svo fór ég í neglur í gær hjá Önnu Kareni :) Ótrúlega flottar..Á einmitt mjög erfitt með að skrifa rétt á tölvuna með þessar neglur :) En já takk Anna min ;)
    En já, annars er ekkert mikið að frétta. :)
Skrifa bara fljótlega, þegar við erum komin heim til tengdó :)

Nýjustu fréttir :)

31. janúar 2008 klukkan 14:30
Jæææææææjja :) Erum búin að fá svar frá bankanum og það var jákvætt :) Sem betur fer! Við Steini erum semsagt officially að kaupa okkur íbúð :) Og hún er staðsett í Hafnafirði og erum við rosa ánægð með staðsetningu og íbúð :) Verður voða gaman að búa í Hafnafirði, enda er ég ekki hálfur hafnfirðingur for nothing :)
    Seinustu dagar eru bara búnir að fara í að pakka, og er heimilið okkar orðið frekar tómlegt. :( Maður trúir því ekki að við séum virkilega að flytja af Mánabrautinni, sem við erum búin að búa í seinasta 1 og hálfa árið :Þ Og munurinn á dótinu okkar frá því að við fluttum frá tengdó og á Mánabrautina og núna, frá Mánabrautinni og til tengdó! :) Eigum svo miklu meira dót, en við erum búin að vera dugleg að henda öllu því sem að við getum ekki notað og notum hvort sem er ekki. Hin íbúðin er nógu lítil svo ekki sé verið að troða hana af drasli :) Næsta helgi mun fara í að pakka og vinna :) Svo þarnæsta helgi eða helgin 8-10 þá flytjum við af Mánabrautinni...
    Við myndum fá afhent 6.mars, sem er eftir mánuð. Það er nú ekki lengi að líða skal ég segja ykkur :) Við munum spara eins og brjálæðingar heima hjá tengdó og flytja inn í nýju íbúðina um næstu mánaðarmót.
Svo 2.apríl er ég að fara til Parísar :) vúhú. Spennan leynir sér sko ekki. Förum örugglega í Disney World, og að skoða moulin rouge, Eiffel og Louvre:) Vá hvað mig hlakkar til.
En nóg í bili..
Skrifa seinna.
Agnes

Prófíll

  • Nafn: Agnes
  • Atvinna: Sundlaug Kópavogs
  • Hjúskaparstaða: Á lausu
  • Um mig: 20 ára stelpa sem er uppalin í Kópavogi, en nýflutt í 101 RVK, bý með bestu vinkonu minni sem er frá Florida, U.S.A. Nýt þess að hanga með vinum mínum og gera eitthvað villt og skemmtilegt :)